Dark Angel

Queen of the fucking Universe any questions.....

02.01.2009 19:49:37 / LK-268

Bara svona ein í tilefni nýs árs

Jæja hey píps long time no bullur hehe en já fullt fullt búið að gerast hjá mér síðasliðna mánuði een ég ætla bara deila með ykkur (þið sem nennið en að kíkja hér inn) að kjellan er orðin bomm jebb bomsadeisí...ég er komin rúmar 14 vikur og er krílið væntanlegt í byrjun júlí hahaha já ég veit 3 krabbinn að koma þetta er ótrúlega fyndið, ég virðist bara vera frjó 2 mánuði á ári hahahahahaha en já ég nenni ekki að skrifa meira en gleðilega hátíð alles klar og megi nýja árið verða okkur bærilegt:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 13:49:02 / LK-268

Eitthvað út í bláinn...

Jæja bara skella einhverju hingað inn for old times sake..en já það er nú ýmislegt búið að vera gerast hjá manni síðan síðast og myndi ég nú frekar segja mig mjög óheppna í apríl ákvað guttinn minn að taka grjót og rispaði allann bílinn! já hann rispaði BMWinn minn allan nema toppinn!! ömurlegt...viku síðar þá hrundi bíllinn algerlega og tók það heilann mánuð plús 356 þúsund krónur að koma honum aftur á götuna 8| en já bíllinn er núna í sprautun og ég fékk bíl til afnota á meðan...en guð minn góður þessi bíll Toyota corolla mm hybrid þvílíkt og annað eins hef ég aldrei keyrt...ég vara bara fólk við að kaupa sér svona bíl þetta er hryllingur að keyra, ég hélt að hann væri bilaður og hringdi í umboðið til að ath en nei hann á að vera eins og hann er...hann sem sagt er beinskiptur samt sjálfskiptur og að keyra þennann bíl er eins og að sitja í bíl með manneskju sem kann ekki á beinskiptann omg...þetta er horror frá a til ö....svo er það ekki búið...ég keypti mér fartölvu og flakkara vegna þess að gamla talvan var að gefa upp öndina, það var alltaf verið að segja við mig að taka allar myndir og myndbönd og setja á flakkara eða disk ef eitthvað skildi gerast og jújú ég bað þá hjá omnis að græja fartölvuna og flakkarann sem sagt að taka allar myndir og myndbönd plús eitthvað fleirra og setja inná flakkarann svo máttu þeir formata diskinn á þeirri stóru...þeir létu mig vita að það væri búið og ég spyr þá að því hvort þeir hefðu ekki tengt flakkarann við fartölvuna og skoðað hvort allar myndir og fleirra væri ekki inná og þeir sögðu jú allt inni sem ég vildi fá.....ég tók þessu trúlega auðvitað þeir eru sérfræðingarnir ekki ég og gef þeim grænt ljós að formata diskinn...en viti menn ÞAÐ VAR EKKERT INNÁ FLAKKARANUM EKKI NEITT!!! þannig að allar mínar myndir og myndbönd eru farin:^) þvílíkt klúður og ég er svo sár og brjáluð að ég veit ekki hvernig ég á að vera... en svo já þetta er ekki búið enn...upp kom hjá mér eftir allt þetta kom upp sú staða að kviðslitið mitt rifnaði upp aftur og ég fór í aðgerð síðasta miðvikudag og ligg núna heima í kvöl og pínu djíssss I cant get a break!!! en já hahaha svona er lífið eins og kallinn minn segir svona er lífið... 

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 14:41:43 / LK-268

Rugl bull og kjaftæði..og til hamingju Harpa:)

Jellóóó...já það er nú ekki búið að gerast mikið síðan síðast en ætli mar verði nú ekki að setja inn nokkrar línur:)
Síðasta mánuð er ég búin að vera vinna alla daga þannig að ég sé börnin mín á morgnana og svo á kvöldin þegar að þau fara að sofa(ef ég er heppin)8| en þetta pays off á endanum sérstaklega þegar að gengið er í tómu tjóni og allt að hækka til andskotanns:!: t.d. bíllinn minn stóð í 1200.000 þús,,,og er núna í 2.100.000kr:evil: Ég meina kræst þetta er bara rugl!!! Bensínverðið heldur áfram að hækka eins og alltaf...jeminn eini ég held að ég ætti nú bara að fjárfesta í BMX hehehehe. En já þetta land er að fara í vaskinn á allann hátt finnst mér, var að horfa á Kompás um daginn og GUÐ minn góður...það er alveg ótrúlegt hvernig þetta kerfi hér á landi er gjörsamlega klikkað....þátturinn var um hvernig kerfið virkar þegar um barnaníðinga á í hlut og jújú auðvitað fá þeir bara borgaðu 500kall og skamm skamm eða einfaldlega málin felld niður vegna þessa að sannanir eru ekki nægilega miklar!! Já einmitt vegna þess að 3-6 ára gömul börn hafa bæði ímyndunaraflið og hugmyndaflugið til að segja frá svona viðurstyggilegum gjörðum!!! Fólk má sko skammast sín það er alveg á hreinu og kerfið hér á landi er okkur Íslendingum til háborinar skammar!

Jæja nóg um þetta allt saman..maður gæti alveg haldið áfram að skrifa um allt þetta rugl en ég nenni ekki að koma mér í vont skap:haha:

Núna sit ég í vinnunni hér í Stakkavík stari út um gluggann á alla litlu bátana hans pabba get nú ekki sagt að þetta sé eitthvað augnprýði + öll fínu fiskikörin :lol: Og hvernig er þetta með snjóinn...ekki að það sé mikið af honum en þetta má nú alveg fara að missa sig því ég líkt og margir fleirri viljum fá sumar og sól...ohhh...ég bara vona að við fáum gott sumar það væri alger snilld:haha:

Á morgun er 21 Mars og hún Harpa mín er að detta í stóru töluna 30 vá hvað tíminn líður hratt. Og ég þarf að vinna my ass off sem þýðir að ég fer ekki í ammilið:( Sorry Harpan mín...en svona er þetta því miður:s í tilefni afmælisdagsinns hennar á morgun ætla ég að syngja afmælis sönginn hér á bloggið:d

        HÚN Á AFMÆLÍ DAG...HÚN Á AFMÆLÍ DAG...
        HÚN Á AFMÆLI HÚN HARPA MÍN...HÚN Á AFMÆLÍ DAG...
        HÚN ER 20+ Í DAG...HÚN ER 20+ Í DAG...HÚN ER 20+ HÚN 
        HARPA MÍN.....HÚN ER 20+ ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ DAAAAAAAAAG:haha:

TIL LUKKU MÍN KÆRA OG EIGÐU FRÁBÆRANN AMMILISDAG ELSKU BESTA SNÚLLUDÚLLUBÚBBULÍNUSAN MÍN...

MÍ LOV JÚ LONTÆM:haha:

Miss crazy G. over and out8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 14:12:53 / LK-268

ég skal æla einhverri visku úr mér hahahahahahaha

Jæja já ég veit ég er búin að eiga afmæli J og já það er komið nýtt ár líka hehe verður mar þá ekki að reyna æla einhverri visku til ykkar í dag?? Tja það er spurning... en jújú sko það er nú búið að gerast alveg heill hellingur síðan að ég átti afmæli maður veit bara ekki hvar á að byrja, sko já það var nú ekkert merkilegt sem gerðist í október eftir afmælisdaginn bara lífið í sínum vanagangi...Í nóvember hins vegar lést hún Herdís vinkona og mar er svona enn að venjast þeirri tilhugsun að hún sé farin og að maður sjái hana ekki afturL en sem betur fer þá eins og hún Harpa mín segir “ við eigum svo margar frábærar minningar með henni “ sem er alveg rétt það var nú ekkert sparað á vitleysunni þegar að við “ Skytturnar 3 “ áttum í hlut hahahaha sem verður ekkert sett hér inn “ ég vil eiga það í friði “ ;) 13. nóvember fórum við Linda til Flórída og það var ekkert smá gaman hjá okkur við átum-drukkum og versluðum hahaha alger snilld þessi ferð okkar, en alveg ótrúlegt en satt þá sáum við mjög lítið af hvítu fólki þarna og flestir töluðu spænsku!! Hvað er það!!! Lentum á leigubíl sem skildi ekki stakt orð og við eyddum 10 dollurum í að rúnta í hringi!! Þvílíkt og annað eins hahaha bull....í  desember var mín nú bara að vinna frá 8 á morgnana til 12 á kvöldin úfff...morgnarnir fóru í að sjá um kaffi í Stakkavík, svo í búðinni frá klukkan 13-21 og svo neglur eftir það þannig að ég get ekki sagt að ég hafi haft mikið frí hehehe einnig þegar að ég var í smá jólafríi þá get ég nú ekki sagt að það sé frí þegar að mar er á fullu í jólaboðum hihi, en ég og Árninn minn héldum okkar fyrstu jól saman og það var æðislegt litla familíanJ Um áramótin vorum við hjá tengdó í mat og skotgleði en jæks veðrið var ferkar sjíttí usssss...eftir sprengingarnar fórum við til Heiðdísar og Bigga og spiluðum teiknispilið haha og það var sko mikið hlegið og listamaðurinn í okkur var á milljón hahahahahaha. Núna er komið nýtt ár og janúar er að verða búinn uss...tíminn líður alltof hratt...en ég er búin að skella mér 2x á djammið og váááá hvað það var gaman hjá mér sjeeeeet alveg krómuð af gleði og búsi hahahahaha en já ég nenni ekki að röfla um það djamm er djamm allir fullir og ruglaðir hehehe punkturJ En þetta er nú orðin ágætis ritgerð hérna hjá mér þannig að ég ætla að segja bæjó í bili og við hittumst hress eftir 3 mánuði hahahahahahaha Leiter píps...

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 15:28:19 / LK-268

Ég á ammil'í dag ég á ammil'í dag....

yes...í dag er minn dagur 23. október..og er ég orðin ótrúlega fullorðin(má deila um það;) heil 28 ár nohhh...en já dagurinn er ósköp venjulegur fyrir mig..fór á fætur í morgun og þreif heima hjá mér..fór svo með krakkana á KFC og fengum okkur að borða..og svo núna já ótrúlegt en satt hehehe þá er ég í vinnunni..í kvöld mun þetta eflaust vera mjög rólegt þ.e. tala við fullt af fólki í símann og svo kemur reyndar kallinn heim en ég hef 4 tíma til að blaðra við mann og annan þar til hann kemur hehehehehehe.  Ég er búin að fá 2 ammilisgjafir hehe sníðaskæri og dót frá múttu og svo gáfu englarnir mínir mér bauk hahahaha baukurinn er kelling sem er að safna sér fyrir skóm....hahahahaha go figure;) en já svona er þessi dagur engin kaka og ekki neitt.....

later pípól....

ammlisbarnið over and out...


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 14:38:41 / LK-268

æji já

æji já einmitt ég veit..ég hef ekkert skrifað í marga mánuði...I know ég hef bara svo lítið haft að segja(ótrúlegt). Ég er búin að fara með Józý á sína fyrstu sýningu (já ég veit þetta er köttur) og hún fékk bara mjög góða dóma, ég er allaveg mjög ánægð með snúlluna mína....Ég fór ekkert um versló sökum auraleysis en o well meikar ekki diff...en svo erum við Linda að fara til Flórída 13 nóvember jebb you heard me...það á eftir að vera svo gaman að skoða allt heila klabbið...stefni á að ganga í barndóm Walt Disney-Universial studios og margt fleirra...ég er allavega mjög spennt...æji vitiði það er rigning og ég nenni ekki að skrifa meir..

Miss G. over and out! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 23:09:00 / LK-268

Ný færsla og ekkert spennandi hahahaha

Jæja here you go...ný færsla...

sko það er ekkert búið að vera gerast hjá mér undanfarinn mánuð..hmm...

Óli bróðir lenti því miður í rosalegu bílslysi 06.07.07 þar sem að hann keyrði á gulu steypustólpana hjá Vogunum og er bíllinn gjörsamlega handónýtur..en sem betur fer slapp hann algerlega, 8 spor í ennið og skrámur á sköflung ( bara kraftaverk ;)  

ég fór í alveg magnað brúðkaup 07.07.07 hjá frænku hans Árna og skemmtum við okkur rosalega vel:) ég er bara búin að vera vinna og EKKI að taka til heima hjá mér;) Það nýjasta nýtt er að ég er búin að klippa mig Já pípól ég er búin að klippa hárið mitt uppfyrir axlir hehehe og er bara dúndur sátt..eða ég meina Linda segir að ég líti út fyrir að vera mikið yngri hehehehe "how old do I look";) en já svo á guttinn minn afmæli í dag, orðinn 3ja ára sjeeeet..hvað tíminn líður alltof hratt...

en jamm nýjasta nýtt Miss G. er kominn á stærri bíl...ákvað að skella mér á stærri bíl út af vinnunni og jújú kjellan sá þá þessa glæsikerru sem auðvitað hún gat ekki sleppt...en það er BMW " en ekki hvað " 540ia omg...sjúkur takk fyrir pent...þannig að Miss G is in'da house hahahahahahaha.....

Ég er búin að vera sveitt alla helgina fyrir afmælið hjá krökkunum að elda og þrífa, en í gær hélt ég uppá ammilið fyrir þau bæði og gekk það bara rosalega vel...góður matur og gott fólk mætti á Árnastíginn át á sig gat og fór svo....hehehe nei nei en þetta var bara alveg magnað:) Lindan mín kom suður með Drekann minn og eru þau mæðgin hjá mér núna og ætla þau að gista í kvöld...en svo á morgun erum við að fara í bæinn...

Þannig að planið í kvöld....

> Laga neglurnar á Lindu (og fá sér smá bjór)

> Laga eina nögl á mér ( og fá sér smá bjór)

> Horfa á Gremlings 2 ( og fá sér smá bjór-rautt og osta )

> Borða meiri osta ( og fá sér smá bjór og rautt )

> Spjalla um hitt og þetta ( og fá sér smá bjór og rautt )

> Tala enn meira saman ( og fá sér smá bjór og rautt )

hehehehehe já þar hafið þið það fullt af bjór, lambrúskó og ostum og við erum sáttar við lífið múhahahahahahahahaha....


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 15:37:57 / LK-268

SNILLDAR BÍLADAGAHELGI BARA DJAMM OG GEGGJAÐ VEÐUR....

Jæja kjellan komin heim eftir svoooo magnaða ferð norður á bíladaga...sjjjjeeeettt...það var svo ógeðslega gaman hjá okkur Lindu og stelpunum við fórum á föstudagskvöldið í sjallann þar var einhver DJ að tapa sér og við skemmtum okkur svo vel...vorum samt komnar snemma heim....ellin farin að segja til sín???...iiiii nei ekki sjéns hahahaha en svo á laugardeginum fórum við á Greifann og átum feitann borgara mmmm.......rúntuðum hingað og þangað og skelltum okkur svo jemm...Linda lagði sig og ég fór með Árnanum á rúntinn og kíktum á spyrnuna...btw..sá ekki neitt sko! en um kvöldið vorum við rosalega tjillaðar á því ég lá í sófanum klukkan 23 með rautt og góndi á dead zone hahahaha en svo skelltum við okkur í djammgallana og gírinn hehehe, við fórum í búningum sem ég á Linda "aka" MILE HIGH CAPTAIN, Guðbjörg "aka" SEXY MARINE og Sigrún "aka" STAR TREK og við vorum hrein snilld...þrátt fyrir að sumt fólk hafi nú verið eflaust hneykslað hahaha en já það er nú bara þannig....ekki gerir maður öllum til geðs:) en vá ég hef ekki skemmt mér svona vel svoooo lengi þetta var hreint æði:) en ég nenni ekki að bulla meira hér..myndir komnar inn www.123.is/darkangel þær segja það sem segja þarf:)

 

ÚTEKT Á STELPUM HELGARINNAR:

LINDA "SLEPPTI ENGUM GRETTUM"

BADDA " FORÐAÐIST VAXTAPPANA "

HILDUR " KLIKKAÐI EKKI Á FYLLERÍS SVIPNUM "

SIGRÚN " MISSTI EKKI BROSIÐ "

ÉG " TÓK GRETTUR-FETTUR OG BRETTUR "

ÞANNIG AÐ ENGINN KLIKKAÐI Á NEINU HAHAHAHAHAHA...SNILLD

P.S.

TAKE THE CHILL PILL:)

MISS CRAZY G.

                                                       


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 16:08:17 / LK-268

Jæja er að fara norður á fimmtudaginn....

Jæja ég er að fara norður á fimmtudaginn og ætla að fara með fullt af fötum úr búðinni þannig að þið sem viljið eitthvað sérstakt endilega kíkjið á www.123.is/gsh og látið mig vita hvað það er sem ykkur langar í og vantar:)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 22:36:45 / LK-268

Brjálaðislegar skammir fyrir bloggleysið!!!

Já já ég veit...ég hef ekki bloggað í hellings tíma, kannski vegna þess að ég hef ekki haft tíma-nennið og bara ekkert merkilegt að segja. En þá eftir miklar skammir þá ákvað ég að drulla einhverju bulli hér inn...hmm...jamm....og...já....ég held að ég punkti bara niður hvað er búið að vera gera hjá mér síðan í apríl.....

* 8 apríl átti Óli bró  19 ára afmæli

* 16 apríl opnaði ég Verslunina Sirrý

* 28 apríl átti Svanhildur sys 25 ára afmæli

* 30 apríl fór ég suprise ferð norður

* 1 maí átti Símon Dreki 1 árs afmæli við fórum heim um kvöldið

* 11 maí átti Heiðdís vinkona 27 ára afmæli

* 19 maí átti Emelía Dana 6 ára afmæli

* 19 maí fór ég með Árna,Þóssa og Svölu í úthlíð

* 25 maí átti Freydís Ósk 10 ára afmæli

Jæja upptalið að ég held...

later pípól.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 21:31:46 / LK-268

Brjálað að gera....

Halló halló...

Já það er búið að vera brjálað að gera hjá manni síðustu daga og ekki skánar missionið fram að helgi...en já nýjustu fréttir af búðarstandinu...Það er búið að skipta um glugga og setja nýtt á gólfið og það er alveg geggjað...ég er núna að bíða eftir vörum bæði frá Grikklandi og USA þannig að það verður spennandi að sjá allt góssið;) Í dag fórum við Árni að mála og gekk það bara ágætlega en við erum ekki búin, við fengum svo óvænta hjálp frá sys en hún mætti galvösk með heavy metal tónlist og skellti sér í málingarstússið með okkur "FRÁBÆRT" ekki veitir manni af allri þá hjálp sem maður fær:) En á morgun er svo páskadagur og verð ég með mat hér heima í hádeginu, aumingja pabbi gamli er aleinn heima því mamma-amma-Þóra-Hemmi og Kleópatra eru úti á Spáni...já litla daman okkar kemur ekki heim fyrr en 12 apríl og á er hún búin að vera í 2 vikur úti...það er nú ansi skrítið að hafa ekki snúlluna mína hér heima og hlakkar mig mikið til að fá krúsluna mína heim:) en ég ætla ekki að hafa þetta lengra..á eftir að ganga frá svo miklu hér heima shittt...en jújú svona er þetta working 24/7 :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:42:47 / LK-268

Steping stone.....

Jæja það eru nú aldeilis fréttirnar sem ég hef handa ykkur pípól...

 Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér síðustu vikur, vertíðin byrjuð í Stakkavík og jújú fullt af fólki að svelta hehehe þannig að gamli ákvað að starta mötuneytinu mínu upp again eftir rúmt ár í pásu þ.e. í matargerð...þannig að ég er byrjuð að elda fyrir allann mannskapinn ísk...ég held virkilega að ég sé komin með ógeð á mat hahahaha en já eins og staðan er núna að þá hitti ég börnin mín á morgnana og svo á kvöldin þegar að þau fara að sofa..ekki spennandiL jæja en sem betur fer stendur þessi vertíð stutt yfir....en þá er komið að stóru fréttunum..dadadadammmm....haldiði að Guðbjörg Hermanns hafi ekki bara látið langþráðann draum rætast!!! Ó jú...gellan hefur fest kaup á fataversluninni Sirrý! Já þið lásuð rétt...Guðbjörg er komin í verslunargeirann..þetta var nú ekki á planinu eða ekki að kaupa þennan rekstur heldur ætlaði ég að stofna mitt eigið fyrirtæki...en fyrir 2 vikum fór ég að velta þessu fyrir mér og já síðasliðinn föstudag skrifaði ég undir kaupsamninginn henni Sirrý minni til mikillar gleði því hún vildi svo mikið að ég tæki við af henni...þessi verslun hefur verið í 23 ár...spáið í því 23 ár! Þannig að vonandi á fólk eftir að taka mér vel...Ég er svona enn þá að melta þetta allt saman úff....en þetta verður bara rosalega gaman og mikil áskorun en ég tek henni með uppbrettar ermarJ Ég tek við búðinni 1 apríl og þá verður henni lokað fram yfir páska þar sem að á að skella nýjum gluggum og nýju áklæði á gólfið...undirstaðan verður sú sama og hjá henni Sirrý og fullt af nýju með þannig að mig hlakkar rosalega til því þetta er svona steping stone hjá minni.. J En þar hafiði það allt að ske hjá mér....en ég læt vita þegar nær dregur hvernig lífið gengur hjá aðalgellunni í GrindócityJ hehehehe  

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 20:09:26 / LK-268

LL cool J what!!!

http://www.youtube.com/watch?v=8mWW6kRITEY

 

ÞETTA ER MESTI HÖNK EVER!!!!

AND HE HAS GOLD!!!

AND HE'S GOT THE FUCKING VOICE TO MATCH!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 22:00:39 / LK-268

NÝJIR SKÓR TIL SÖLU

HÆ HÆ ENDILEGA KÍKJA Á MYNDASÍÐUNA MÍNA ÞAR FINNIÐI FULLT AF FLOTTUM SKÓM TIL SÖLU:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 00:00:23 / LK-268

Jæja þá...

Ellú pípól...

það er nú ekki búið að vera mikið að gerast hjá mér síðustu daga bara vinna og aftur vinna. Ég og krakkarnir erum að fara norður í fyrramálið og ég er svooo ekki að nenna að keyra úfff...ég á eftir að verða þreytt, stefnan er að fara heim til Jónu um leið og við lendum í bænum þannig að það verður fjör, ég fer með 3 stútfulla kassa af fötum úr verslun Sirrýar og vonandi finna dömurnar mínar eitthvað við sitt hæfi:) Ég er alveg búin að sjá að ég verð í ströngu prógrammi fyrir norðan hehehe en ekki hvað:) en á laugardaginn fær hún Viktoría Líf nafnið sitt í skírn og Lena sagði mér að hún ætlaði ekki að hafa kaffi og solleiðis heldur einhvern gúmmolaði rétt sem mamma hennar býr til..mmmm....*slef*slurp* þannig að þessi dagur hjá stuttu á eftir að vera alveg frábær:) núna er ég búin að vera reyna að þrífa húsið og þvo þvottinn á þessum bæ hmmm..alveg magnað hvað sér ekki högg á vatni:/ en ó well..ég er búin að vera pakka okkur niður í risa umbro tösku sem ég er að troðfylla hehehe alltaf eins og ég sé að flytja bwahahahaha sem minnir mig á það að ég er ekki búin að skella neinum fötum af Leonard í töskuna nema jakkafötin !!!!! DAMN IT!!! stupid me ohh..og að fatta það þegar að ég er að skrifa eitthvað endemis rugl hér:) hehehe jæja ætli ég verði þá ekki að hætta að pikka og skella fötunum hans í töskuna því allt fer út í bíl NÚNA...ohh ég er svo sniðug...

Miss crazy bubble G.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Leitarbox

Myndir og myndbönd
Tónlist
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti